6.1.2009 | 15:09
boogie, boogie, út á gólf, fyrir þá sem vilja dansa...
Gúd morning 
smá tilraun til að bæta mig í bloggheimi...
Jólin búin! Ágætustu jól svosem
var að vinna helling yfir júletiden, fékk svo frí yfir áramót og henti ég mér uppí úthlíð, þar er risa höll, baunir og hvítir hestar.
Breki fór á kostum og reytti af sér brandarana á milli dansspora, tók róbótið og moonwalk 
Það er svo sem ekkert mál að bera visku mína til ykkar, þarf samt að hafa einhverja visku til að gefa sem er allt annað mál.
Nokkuð gott komið af ruglinu, er ekki voðalega frjó þessa dagana...
Afmæli næstu helgi, ALMA 21 !¨
þá verður heljarinnar partý á Bjarna fel, ég verð með grímu..
Berglind komin 27 vikur á leið og stækkar krílið óðfluga
jii....keypti smá barnaföt í jólapakkann, fannst minnsta stærðin svo fáránlega lítil, trúi ekki að barn passi í svona svo ég keypti næst minnsta...sem er síðan pottþétt allt of stórt 
Svona var maður svalur á Bryggjó í sumar 
hilsen
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.12.2008 | 19:09
haven´t you heard? That the Bird is the word...? =O
Tíminn aðeins of fljótur að líða, og alltaf gleymir maður þessari blessuðu síðu =/
Mest lítið að frétta af mér annars, engin próf eins og hjá flest öllum....samt alltaf meira og meira að gera í vinnunni fyrir jól....sem er bara gott!
Fór, eða reyndi, í jólagjafaleiðangur í dag með Ölmu....haha...við keyptum ekki neitt! nema eitthvað handa okkur sjálfum
enda er ég líka svo tóm í hausnum hvað varðar þessar blessuðu gjafir, og líka low budget í gangi svo það er enn erfiðara að finna eitthvað við hæfi.
Fann nú samt eitthvað handa Berglindi minni og nínu syss, svo keypti ég smá í tiger fyrir breka...í þeirri góðu búð
10 gjafir to go...
En hvað um það.,.....afmælið var ÆÐI!! takk allir fyrir frábært kvöld, heppnaðist ekkert smáá vel
við saga alveg í sjöunda himni með það! 
HAHAHAHAAHAHAHAH Alma labbaði á glerhurð í dag!!!! hahahahaha!!! það bjargaði deginum fyrir mér og er ég ennþá hlægjandi!!
hvar væri ég án hennar...??
Bless 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.11.2008 | 23:24
hallóóó.... greinilega ekki að standa mig!
vá 2 mánuður frá síðustu færslu! ehh...
Jæja...ég fór til spánar! Svaka stuð.....svona þangað til mánudaginn 6. október. En þá skall á kreppa á skerinu og maður vissi ekkert hvort maður gæti notað kortin sín eða einfaldlega komið heim
En dagurinn eftir, 7. október, bjargaði allri ferðinni því....ég átti AFMÆLI!!!! Vííííííjjjjjj!!! loksins orðin tvítug
gleði gleði gleði!!!
Svo kom ég heim, með risa bros því ég keypti tollinn í fyrsta skiptið
skil samt ekkert í því afhverju afgreiðslukonan starði svona mikið á mig, þess á milli sem hún starði á kortið mitt....starði á kortið, síðan mig, á kortið, og mig...hmm..
þess má geta að það var kona um daginn sem hélt ég væri 15 ára, var alveg steinhissa á því að ég væri að keyra bíl...
Jæja, eftir útlandið hef ég bara verið að vinna... ekkert svakalega mikið djamm samt, eða allavega ekkert mission shittfaced
kannski sem betur fer...
ætla að láta fylgja nokkrar myndir hérna...
Breki og ég að pósa á barnum...höfðum voða lítið annað að gera á kvöldin
úllalla...
Anton Breki á ströndinni...
þið ykkar sem sáuð Juno ættuð að kannast við þennan djús.. SunnyD ;)
komið gott í bili... Þið sem viljið bjóða ykkur fram í mission shitfaces laugardaginn 22. nóv vinsamlegast gefið ykkur fram því þá verður tjúttað!!!
Ást og friður kv. Unnur tvítuga 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Heil og sæl...!
Það sem hefur gerst frá því síðast er harla mikilvægt. Jahh íslendingar fengu silfrið á ÓL, riddarakrossar og læti.
Ég hætti í vinnunni og byrjaði á öðru sambýli, sem er alveg æðislegt =)
Mér finnst MJÖG asnalegt að vera ekki í skóla, þar sem maður hefur sest á skólabekk öll haust frá 6 ára aldri!
þrátt fyrir það er ég BÚIN með skólann!!!! 
Ég skellti mér á Menningarnótt, sem var svaka gaman. Hitti Jón Ragnar og Helgu kærustu hans ásamt fleirum, keypti mér landsliðsbol fyrr um daginn og var i honum á djamminu sem vakti mikla lukku hjá lýðnum og fyrr enn varði stóð ég ein upp við pósthúsið og 15 manns í kringum mig að bjóða í mig!!
krípí en skemmtileg reynsla...
Helgina eftir það var gríðarmikið staffadjamm! Aulinn ég drapst um miðnætti, dreif ekki einu sinni í bæinn, heldur ekki í eitthvað rúm heldur fannst mín bara á baðherbergisgólfinu!! takk fyrir pent...
Jæja, mér var hent inní rúm og kúrði ég þar með henni Rósu (hundur, sem geltir mikið), síðan kom stjáni að ná í mig... get svo svarið það, hann þurfti að halda á mér úti í bíl! (vil taka það fram að ég man ekkert eftir þessu, svo það gæti verið um ýktar frásagnir frá örðum sem koma hér fram ) Þegar ég komst svo loksins inn í bílinn tóku á móti mér 2 hundar í viðbót! einn boxer og einn bulldog
mér ekki til mikillar ánægju og ýtti þeim frá mér, lagðist að rúðunni og sofnaði þar. Svo leið ekki á löngu þar til mér fannst sú stelling ekki nógu góð, svo ég byrja að þreifa eitthvað í kringum mig og fann svona líka mjúkan og góðan stað við hliðiná mér og lagðist pent þar ofaná 
En eftir betri athugun var það bulldog-inn sjálfur sem svaf þarna við hliðiná mér og ég ofaná maganum hans, svaf þar eins og engill.
Svo tók við svakaleg ferð út úr bílnum og upp tröppurnar heima, sem tók dágóða stund... beint inn, og vakna ég síðan um 4 leitið inni á baðherbergis gólfi!! Svona líka fram för frá því fyrr um kvöldið 
Eftir þessa reynslu og þynnkuna daginn eftir hef ég ekki bragðað áfengi og er ennþá skömmustuleg þegar ég hitti fyrrum samstarfmenn mína
klapp fyrir mér....!
ÉG á afmæli eftir 29 daga! ef ég get talið rétt ;) þá verður mín tvítug
víjjjj...
en þrátt fyrir það ætla ég að skella mér til costa del sol, takk fyrir góðan dag! í viku á 4 störnu spa hótel....vááá hvað ég hlakka til!!
Síðan held ég gríðarstórt afmæli, mjög líklega með sögu...þá læt ég ykkur vita og vona að allir komist 
Later... Unnur Kr.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.8.2008 | 18:33
Ísland er stórasta land í heimi !! =)
já svo sannarlega dorrit mín! vá, ég er ekki ennþá komin niður á jörðina eftir þennan svaka leik gegn spánverjum...fokkashitt!
og ég, aldrei eins og vant, byrjaði að tárast þegar tvær min voru eftir og átti mjög erfitt með að hemja mig...
Hvaða íslendingur í þessum heimi er ekki að springa úr stolti akkurat núna?!?!
gosh!
Þá er það bara næsti leikur gegn engum öðrum en Frökkum! Á sunnudagsmorgenen, menningar nótt á morgun og það verður vakað þangað til að dómari flautar leikinn af!!
á frekar erfitt með að skrifa vegna titrandi handa og spennufalls svo ég enda þetta með skemmtilegri mynd úr Eyjum... Luv jú long time XOXO
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.8.2008 | 23:27
12 tíma bið og 12 tíma svefn
Þjóðhátíð! þarf að segja eitthvað meira...??
Ég er smituð
og héðan í frá fer ég aðeins á Þjóðhátíð um Verslunamannahelgi.
Til að gera langa sögu stutta þá voru helgin GEÐVEIK.
Mættum hressar til eyja um 4 leitið á fimmtudeginum og komum okkur fyrir í svítunni, hentum okkur í dalinn, urðum blind fullar....ég tók mission shittfaced það kvöldið!! og þurfti að halda á mér heim 
Svo var það alltaf þannig að næsti dagur var skemmtilegri en hinn, föstudagurinn betri en fimmtudagurinn, laugardagurinn betri en föstudagurinn og sunnudagurinn stóð náttla uppúr öllum hinum og fagnaði ég því með því að renna mér niður drullubrekkuna og vann ljótudanskeppnina með yfirburðum!! 
Svaka stuð á fimmtudagskvöldinu...áður en ég dó 
Síðan kom jónsi til okkar og söng svo fallega!! haha...beltið hans eitthvað á mis, frekar vandræðanleg mynd.... ehh 
Eigum við að ræða stærðarmuninn!! HAHA! þetta er ekki photoshoppað, hann stendur ekki á kassa og berglind er ekki að beyja sig! ÁN GRÍNS! 
Svo fórum við Berglind í búðarleik 
Tjékkiði á hinum myndunum elskurnar mínar.
Ég ætla að fara aftur að sofa eftir 5 fkn nætur á steingólfi! var ég búin að segja ykkur að ég elskaði rúmið mitt...?? 
Bless elskurnar mínar, þá er bara að byrja að plana næstu þjóðhátíð !
Luv Unnur haugur =)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.7.2008 | 21:07
fórnalamb ölvunar-fótbolta
Þá eru ein skemmtilegustu helgi sem ég hef upplifað liðin og má sjá ýmis merki um það á líkama mínum 
- Marblettur á ÖXLINNI
- Kúla á hnakkanum
- Sólbrunnin
- Gígantískt bikíni far
- 7 marblettir á sköflungunum
- Harðsperrur all over....

Ég stend mig vel!
Þannig er mál með vexti að ég fór tvisvar í fótbolta aðfararnótt laugardagsins og stóð mig með prýði
Tók reyndar ekki strax eftir votu grasinu og flaug því reglulega á hausinn
fannst alveg hreint ótrúlegt hvað ég fann lítið fyrir hausverk!...þangað til daginn eftir!
Ballið var mjög vel heppnað og sérstaklega brekkusöngurinn! jii...alveg er maður orðinn reddí fyrir þjóðhátíð 
nenni ekki meiru...vildi koma því að að ég tók heilar 4 myndir því, auðvitað tókst mér að gleyma myndavélinni alltaf í tjaldinu, sry 
Umhyggja....Unnur Kr.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14.7.2008 | 18:37
wollahh! og nornin dó...
heil og sæl !
nennuleysi í gangi hérna megin, varð bara að segja ykkur dálítið...
...viti menn! ég er komin með brún augu !! ekkert smá skrítið...ætla að henda inn einni mynd ykkur til skemmtunar.
víjjj! =) alltaf gaman að missa sig með kameruna!!
dúú dúú!!
mig vantar álit! brún eða blágræn??? hmm...
en að máli málanna...Bryggjuhátíð á Drangsnesi næstu helgi! god hvað ég hlakka til...
hurru! ég fór EDRÚ niðri bæ á laugardagskvöldið! haa! þetta gat ég...drakk vatn allt kvöldið, ogisslega dúleg
en komst að því að það er leiðinlegt að fara niðrí bæ edrú..lyktin er horror, klósettin...jakk!! ég raðaði alveg klósettpappír á setuna og settist eins varlega og ég gat á setuna við hræðslu við ókunnuga sýkla!..svo get ég einfaldlega ekki dansað við þessa klúbba tónlist edrú!! jii... en yfir höfuð var allt í lagi
...en ekki nóg með það, að þegar ég labbaði heim fann ég fyrir smá óþægindum af skónum ( sem ég er í vanalega , full á djamminu) en hugsaði ekkert meira út í það og labbaði beint heim.
Fokk! þegar ég kom heim, fór úr hægri skónum, var hann allur út í blóði og hælsærið á mér var á stærð við 2 tíkalla!!! þetta fullkomnaði kvöldið....
beauty is pain...
Ég er búin að fjárfesta í vatnsbyssu...hún er fjólúblá og drífur 6 metra! beware!! þið sem hittið mig á bryggjuhátíð...muhahahahaha...!
BLESSÓ bjútífúl píbs =)
ást og friður... Unnur skytta 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.7.2008 | 12:06
your eggo is preggo, no doubt about it...
Hurru!!!
jebb, þetta verður frekar stutt og hnitmiðað blogg, þar sem ekkert spennandi hefur gerst í mínu viðburðarríku lífi!
Búin að vera að vinna helling eftir hamingjudagana.
Skelltum okkur aðeins á írska daga, mjög skemmtilegt 
Er í fríi í dag OG á morgun 
Ætla að sitja í sólbaði allan tímann!!
Og plana betur Bryggjuhátíð og Þjóðhátíð...
....sem minnir mig á það að ég þarf að spara!!
hvað sem það nú er....??
Edrú tímabilið mitt entist því miður harla lengi, fékk mér öl á föstudaginn síðasta, og laugardag, sunnudag...líka í gær
spurning er því: GET ég verið edrú fram að Bryggjuhátíð???
...aaa..geysp!
enda þetta stórskemmtilega blogg með mynd 
saga og ég, ýkt hressar 
luuuw....Unnur Kr.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.6.2008 | 23:36
myndablogg =)
já það fer nú ekki á milli mála hvað var á ferðinni á Happydays þessa helgina....mikil ölvun! Enjoy 
á leiðinni norður byrjuðum við að hella í okkur....eins og sést =)
Driverinn mr. Johnny boy að bora í nefið 
svo ákváðum við að sýna hæfileika okkar á blaði svo við byrjuðum að teikna....eins og þið sjáið 
Jón í dúkkuleik við Golla =)
sexí bíst!!
Unnur Eva og Egill aðaltöffararnir á svæðinu!
Berglind með fínu gleraugun hans Arnþórs...sæta sæta 
fleiri myndir inná myndasíðunni =) Takk fyrir helgina kjútturnar mínar, luv jú all!
XOXO Unnur þunnur...
Bloggar | Breytt 1.7.2008 kl. 00:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)

fvk
trini
missy









